Hér getur þú valið og bókað gistingu í Húsadal Þórsmörk sem hentar þér og þinni fjölskyldu.
Þórsmörk er einn fallegasti staður Íslands og fullkominn áfangastaður fyrir fjölskyldur sem vilja komast aðeins út í náttúruna. Hér í Húsadal bíða ævintýri við hvert fótmál, stuttar og langar gönguleiðir, skógarstígar, hellar og álfaslóðir, göngubrýr yfir jökulár og útsýni yfir jökla og fjöll.
Í Húsadal bjóðum við upp á fjölbreytta gistingu, góðan mat og afslappað andrúmsloft þar sem börn og fullorðnir geta notið náttúrunnar saman.
Náttúrulegur leikvöllur og kennslustofa
Dvölin í Þórsmörk er ævintýri út af fyrir sig. Þegar komið er í Mörkina tekur við einstök náttúruupplifun þar sem fjölskyldur geta notið fallegra gönguleiða, skemmtilegra gistimöguleika og afslappaðs andrúmslofts í hjarta náttúrunnar.
Börnin fá að leika sér frjáls í öruggu umhverfi, skoða skóginn og prófa sig áfram í stuttum gönguferðum, á meðan foreldrar njóta samverunnar. Á kvöldin skapast sannkölluð útilegustemning með varðeldi þar sem grillaðir eru sykurpúðar, og fyrir þá sem vilja slaka enn betur á er hægt að fara í gufu og skella sér í litla vaðlaug eftir dag fullan af ævintýrum.
Styttri og lengri gönguferðir sem henta allri fjölskyldunni
Í Húsadal getur þú valið gistingu sem hentar þinni fjölskyldu
Í Húsadal í Þórsmörk eru fjölbreyttir gistimöguleikar sem henta mismunandi fjölskyldum og ferðamáta.
Hægt er að velja uppábúin lúxustjöld og notaleg herbergi fyrir þá sem vilja meiri þægindi, smáhýsi með kojum sem eru sérstaklega vinsæl hjá börnum og unglingum, eða tjaldstæði í fallegu umhverfi fyrir fjölskyldur sem vilja upplifa útilegu í náttúrunni.
Margir velja líka að blanda saman gistimöguleikum, til dæmis gista foreldrar í herbergi eða lúxustjaldi á meðan krakkarnir sofa í smáhýsi eða tjaldi. Þannig fá allir sína upplifun: þægindi fyrir foreldrana og ævintýri fyrir krakkana.
Hér getur þú valið og bókað gistingu í Húsadal Þórsmörk sem hentar þér og þinni fjölskyldu.
Hér finnur þú upplýsingar um veitingar sem boðið er uppá í Húsadal í Þórsmörk