Gistu í GLAMPING lúxustjöldum, tveggja manna herbergjum, smáhýsum, fjallaskálum eða í þínu eigin tjaldi. Hafðu það gott í Húsadal.
Volcano Huts í Húsadal Þórsmörk bjóða upp á gistingu og veitingar á besta stað í Þórsmörk. Hægt er að velja um gistingu í GLAMPING lúxustjöldum, tveggja manna herbergjum, smáhýsum, og fjallaskálum auk þess sem hægt er að tjalda. Eftir langan dag á fjöllum er gott að vita að hér í Húsadal bíður þín heit máltíð, kaldir drykkir, gufubað og uppábúin rúm við fótskör bestu gönguleiða landsins. Hafðu það eins gott og þú vilt hafa það! #mínþórsmörk
Hafðu það eins gott og þú vilt hafa það í Húsadal Þórsmörk
Í Húsadal í Þórsmörk bjóðum við upp á gistingu og veitingar fyrir hópa og einstaklinga sem vilja upplifa Þórsmörk.
Hér getur þú dvalið í GLAMPING lúxustjöldum, tveggja manna herbergjum, smáhýsum, fjallaskálum og á tjaldsvæðum. Aðgangur að sturtum, gufubaði og náttúrulaug er innifalinn í gistingu en aðrir ferðalangar geta fengið aðgang að þeirri þjónustu gegn vægu gjaldi.
Veitingastaðurinn okkar býður upp á ljúffengar veitingar fyrir hópa og einstaklinga sem leið eiga um Þórsmörk. Boðið er upp á morgunverð, hádegisverð, kaffiveitingar og kvöldverð auk þess sem hægt er að setja upp veislur og viðburði fyrir hópa hvort heldur sem er innandyra eða utan. Eftir matinn er svo tilvalið að fá sér drykk á barnum eða við varðeldinn og deila ferðasögunni með öðrum ferðalöngum.
Mundu svo að deila þinni Þórsmörk með okkur hinum #mínþórsmörk #volcanotrails
Þar sem allar bestu gönguleiðir landsins mætast
Þórsmörk er ævintýraheimur göngufólks og náttúruunnenda á öllum aldri. Landslagið er ægifagurt og mótast af samspili eldfjalla, jökla, skóga og jökuláa sem móta útsýnið til allra átta.
Frá Húsadal liggur fjöldi gönguleiða um Þórsmörk og Goðaland og má þar helst nefna Þórsgötuna Laugaveginn og Fimmvörðuháls sem eru vinsælustu gönguleiðir landsins. Gönguleiðakort eru seld í Húsadal.
Til að komast í Húsadal er ekið frá Suðurlandsvegi upp Þórsmerkurveg sem er jeppafær vegarslóði merktur F249. Fara þarf yfir nokkrar ár og læki á leiðinni en helst má þar nefna Krossá sem eingöngu er fær vönum bílstjórum á vel útbúnum jeppum.
Daglegar rútuferðir eru í boði á sumrin en hægt er að nálgast nánari upplýsingar um áætlun rútuferða og að bóka rútumiða hér.
Húsadalur er staðsettur í Þórsmörk og til að komast hingað þarf að fara yfir óbrúaðar ár. Best er að leggja bílnum og hoppa um borð í rútuna sem kemur þér örugglega yfir árnar. Hægt er að taka rútuna alla leið frá Reykjavík eða leggja bílnum við Hvolsvöll, Brú Base og taka rútuna þaðan. Hér getur þú séð rútuáætlunina og keypt rútumiða í Þórsmörk.
Gistu í GLAMPING lúxustjöldum, tveggja manna herbergjum, smáhýsum, fjallaskálum eða í þínu eigin tjaldi. Hafðu það gott í Húsadal.
í Húsadal Þórsmörk færðu staðgóðan, hollan og góðan mat sem stendur með þér allan daginn á gönguleiðunum. Hér færð þú morgunverð, hádegisverð, nestispakka, kvöldverð, millimál og hressandi drykki á barnum.