Hér getur þú valið og bókað gistingu í Húsadal Þórsmörk sem hentar þér og þinni fjölskyldu.
Upplifðu Þórsmörk með börnunum í einni mögnuðustu náttúruperlu Íslands. Stuttar og lengri gönguleiðir, stórkostlegt útsýni yfir fjöll og jökla og notalegar stundir í Húsadal með kakó við varðeldinn.
Náttúrulegur leikvöllur og kennslustofa
Dvölin í Þórsmörk er ævintýri út af fyrir sig. Þegar komið er í Mörkina tekur við einstök náttúruupplifun þar sem fjölskyldur geta notið fallegra gönguleiða, skemmtilegra gistimöguleika og afslappaðs andrúmslofts í hjarta náttúrunnar.
Börnin fá að leika sér frjáls í öruggu umhverfi, skoða skóginn og prófa sig áfram í stuttum gönguferðum, á meðan foreldrar njóta samverunnar. Á kvöldin skapast sannkölluð útilegustemning með varðeldi þar sem grillaðir eru sykurpúðar, og fyrir þá sem vilja slaka enn betur á er hægt að fara í gufu og skella sér í litla vaðlaug eftir dag fullan af ævintýrum.
Þórsmörk er einn besti staðurinn á Íslandi til að upplifa náttúruna með börnum, stuttar göngur, stórbrotin útsýni og ævintýrið byrjar strax í með ferðinni yfir árnar á leiðinni í Mörkina.
Styttri og lengri gönguferðir sem henta allri fjölskyldunni
Í Húsadal getur þú valið gistingu sem hentar þinni fjölskyldu
Í Húsadal í Þórsmörk eru fjölbreyttir gistimöguleikar sem henta mismunandi fjölskyldum og ferðamáta.
Hægt er að velja uppábúin lúxustjöld og notaleg herbergi fyrir þá sem vilja meiri þægindi, smáhýsi með kojum sem eru sérstaklega vinsæl hjá börnum og unglingum, eða tjaldstæði í fallegu umhverfi fyrir fjölskyldur sem vilja upplifa útilegu í náttúrunni.
Margir velja líka að blanda saman gistimöguleikum, til dæmis gista foreldrar í herbergi eða lúxustjaldi á meðan krakkarnir sofa í smáhýsi eða tjaldi. Þannig fá allir sína upplifun: þægindi fyrir foreldrana og ævintýri fyrir krakkana.
Hér getur þú valið og bókað gistingu í Húsadal Þórsmörk sem hentar þér og þinni fjölskyldu.
Hér finnur þú upplýsingar um veitingar sem boðið er uppá í Húsadal í Þórsmörk