Laugardaginn 9. ágúst 2025 verður Fimmvörðuhálshlaupið haldið í fimmta sinn. Hlaupið verður frá Skógum sem leið liggur yfir Fimmvörðuháls að endamarki í Húsadal í Þórsmörk.
Nánari upplýsingar um hlaupið, skráningu og fyrirkomulag viðburðarins er að finna á heimasíðu hlaupsins.
Gistingu í Húsadal í tengslum við viðurðinn er hægt að bóka hér á þessari síðu.
Rútumiða í og úr Þórsmörk er hægt að bóka hér á þessari síðu.
Rútumiða frá Húsadal að Skógum að loknu hlaupi verður hægt að bóka hér á þessari vefsíðu. Upplýsingar um það verða auglýstar og sendar skráðum keppendum þegar nær dregur.