Rútuferðir yfir Krossá

Boðið er upp á rútuferðir yfir Krossá fyrir hópa og í tengslum við einstaka viðburði. ATH ekki er hægt að bóka ferðir yfir Krossá nema í þessum tilfellum. Veldu rétta dagsetningu og bókaðu far með rútunni. Neðst á þessari síðu finnur þú nánari upplýsingar um ferðir yfir Krossá.

Spurt og svarað
Plus icon to open answer to question
Hvað kostar miðinn?

Verð er breytilegt en hver miði gildir báðar leiðir. Verð kemur upp þegar þú velur dagsetningu og fjölda farþega í bókunarvélinni.

Plus icon to open answer to question
Hvenær kemur rútan?

Ferðir yfir Krossá eru eingöngu í boði í tengslum við viðburði eða fyrir hópa. Rútan kemur 15 - 20 mínútum fyrir auglýstan komutíma á áfangastað í Húsadal. Rútan stoppar og tekur upp farþega við Krossá. Ef ekki eru laus sæti í fyrstu ferð þá fer rútan áfram í Húsadal en kemur aftur og sækir farþega.

Plus icon to open answer to question
Hvenær fer rútan frá Húsadal tilbaka yfir Krossá?

Fyrsta rúta frá Húsadal fer með farþega yfir Krossá um 30 mínútum fyrir auglýstan brottfarartíma til Reykjavíkur eða þegar rútan er orðin full af farþegum sem ætla að fara yfir Krossá.

Plus icon to open answer to question
Er pláss fyrir farangur?

Farþegar geta haft með sér farangur en mikilvægt er að mæta tímanlega og vera tilbúin til að ganga um borð þegar rútan mætir því hún stoppar aðeins stutta stund til að taka farþega um borð.

Plus icon to open answer to question
Ég ætla að gista, get ég notað miðann tilbaka daginn eftir?

Hver miði gildir báðar leiðir og farþegar geta notað miðann til að komast aftur tilbaka yfir Krossá daginn eftir viðburð ef þeir ætla að gista.

Bílastæði við Krossá
>