Það er gott að slaka á gufubaðinu og lauginni í Húsadal eftir langan dag á fjöllum

Í Húsadal Þórsmörk höfum við sett upp gufubað við litla laug. Vatnið í lauginni er um 25 - 29°C heitt og rennur úr borholu innan úr Húsadal. Aðgangur að sturtum, gufubaði og lauginni er innifalinn í allri gistingu í Húsadal.

Gufubaðið og laugin í Þórsmörk

Hér er gott að jafna sig eftir Laugaveginn, Fimmvörðuháls og gönguna um Þórsmörk