Þórsgata Volcano Trail Run er eitt vinsælasta utanvegahlaup ársins

Laugardaginn 7. september árið 2024 fer fram í ellefta sinn utanvegahlaupið Þórsgata Volcano Trail Run. Hlaupið er opið öllu áhugafólki um utanvega- og fjallahlaup. Boðið verður upp á tvær vegalengdir sem báðar liggja um bestu útsýnisstaði Þórsmerkur. Þórsgatan er ein vinsælasta og fallegasta hlaupaleið landsins og laðar að sér fjölda hlaupara ár hvert.

Rúta frá BSÍ Reykjavík

Loading...

Rúta á milli Krossár og Húsadal í Þórsmörk

Fer tvisvar á milli 10:30-11:30 og fer til baka kl 15:30 frá Húsadal

Hér bókar þú máltíðir eftir hlaupið

Upplýsingar
Plus icon to open answer to question
Skráning og þátttökugjöld

Opnað hefur verið fyrir skárningu í hlaupið hér á Hlaup.is

12 km

Skráningar til 30.júní: kr. 7.900

Skráningar frá 1.júlí - 4.september: kr. 8.900

Skráningar frá 5.september - 7. september: kr. 12.900

4,5 km

Skráningar til 30.júní: kr. 2.900

Skráningar frá 1.júlí - 4.september: kr. 3.400

Skráningar frá 5.september - 7. september: kr. 3.900

Lokað verður fyrir forskráningar á hlaup.is kl. 18 föstudaginn 6. september en hægt verður að skrá sig á staðnum til kl. 11:00 þann 7. september.

Hámarksfjöldi í 12 km hlaupið er 500 manns.

Plus icon to open answer to question
Innifalið í skráningargjöldum

Innifalið í þátttökugjaldi er tímatökuflaga, aðgangur að sturtum, gufubaði og baðlaug eftir hlaupið

Plus icon to open answer to question
Ræsing

12km Þórsgata: Ræsing 7. september 2024, kl. 12:00 við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið endar á sama stað. 

4,5 km Valahnúkur: Ræsing 7. september 2024 kl 12:15 við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið endar á sama stað. 

Plus icon to open answer to question
12 KM | Þórsgata

Leiðin: Hlaupið er inn Húsadalinn áleiðis upp Laugaveginn. Þegar komið er upp úr Húsadal er beygt af leið til hægri í áttina að Langadal og farið af stígnum upp á Slyppugilshrygg og meðfram honum þar til stígurinn liggur niður í Slyppugilið. Þá er beygt til vinstri áleiðis að Tindfjallasléttu og svo niður Stangarháls að Stóraenda. Þaðan er hlaupið eftir Krossáraurum að Langadal og stefnan tekin upp Valahnúk (275 m hækkun) og niður aftur að vestanverðu að endamarki í Húsadal.

Hér má sjá leiðina á korti og hér má svo einnig hlaða niður GPX skrá með leiðinni.

Plus icon to open answer to question
4,5 KM | Valahnúkur

Leiðin: Hlaupið er inn Húsadalinn og þaðan farið inn á stíg sem liggur að Langadal. Þegar komið er í Langadal þá er Haldið upp Valahnúk (275 m hækkun) og niður aftur að vestanverðu að endamarki í Húsadal. Leiðin hentar jafnt þeim sem vilja fara hratt yfir og einnig þeim sem vilja taka létt skokk eða ganga.

Plus icon to open answer to question
Afhending keppnisgagna

Hægt verður að nálgast keppnisgögn daginn fyrir hlaupið í Reykjavík auk þess sem hægt verður að fá keppnisgögn afhent á staðnum fyrir ræsingu.

Nánari upplýsingar um afhendingu gagna með tíma og staðsetningu verða birtar á Facebooksíðu hlaupsins þegar nær dregur.

Plus icon to open answer to question
Rútuferðir í og úr Þórsmörk

Rútur fara frá Reykjavík á keppnisdag en einnig er hægt að gista og taka rútu tilbaka daginn eftir.

Hægt er að bóka rútuferðir hér á þessari síðu

Plus icon to open answer to question
Veitingar

Hægt er að bóka veitingar á þessari síðu en einnig geta aðstandendur keypt mat og drykki á barnum á staðnum.

Plus icon to open answer to question
Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sæti karla og kvenna auk þess sem dregnir verða út vinningar.

Í stað þess að veita þátttökuverðlaun (medalíu) verður samsvarandi upphæð veitt í umhverfissjóð Volcano Trails til uppbyggingar, merkinga og viðhalds göngu- og hlaupaleiða í Þórsmörk.

Plus icon to open answer to question
Ýmsar upplýsingar

Brautarverðir verða á völdum stöðum á leiðinni. Stígur er greinilegur mestan hluta leiðarinnar og brautin merkt með stikum.

Engar drykkjastöðvar verða nema í endamarki en vatn rennur í lækjum hér og þar meðfram leiðinni þar sem hægt er að fylla á brúsa.

Hlaupið er haldið af Volcano Trails í Húsadal Þórsmörk í samstarfi við Hlyn og Þórdísi hjá Hlaupár sem sjá um hlaupastjórn.

Hér geta allir tekið þátt og við hvetjum fólk til að taka fjölskylduna með. Tilvalið að taka börnin og/eða ömmu/afa með til að fara 4,5 km leiðina.

Ábendingar og fyrirspurnir er varða hlaupið sendist á [email protected]

Í samstarfi við Hlaupár

Þórsgata Volcano Trail Run er haldið í samstarfi við Hlaupár.is

Þórsgata Volcano Trail Run hefur gengið til samstarfs við þau Þórdísi og Hlyn hjá Hlaupár.is en þau munu sjá um hlaupastjórn viðburðarins, samskipti við keppendur auk þess sem Hlaupár veitir vegleg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í karla og kvennaflokki. Að auki verða dregin út vegleg útdráttarverðlaun.

www.hlaupar.is

Þórsgata Volcano Trail Run Kort
>