Söfnum áheitum og styrkjum gott málefni

Laugardaginn 31. maí 2025 verður haldinn styrktar- og gönguviðburðurinn GÖNGUM SAMAN ÞÓRSGÖTU í Þórsmörk. Markmið viðburðarins er að koma saman og ganga hina frábæru gönguleið Þórsgötu og safna um leið áheitum til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Gakktu með okkur og upplifðu óviðjafnanlega náttúru Þórsmerkur um leið og þú styrkir gott málefni.

Skráning

Volcano Trails bætir við kr. 1.500 í mótframlag við hverja skráningu. Skráningargjöld renna óskipt í Rannsóknarsjóð Göngum saman.

Um viðburðinn

  • 31. maí 2025 - nánari dagskrá neðar á síðunni
  • Húsadalur Þórsmörk
  • 2 Gönguleiðir í boði (12 km og 6 km) - sjá neðst á síðu
  • Skráningargjald rennur óskipt til Göngum saman
  • Volcano Trails greiða kr. 1.500 mótframlag á mann
  • Hægt að safna áheitum eða leggja fram frjáls framlög

Á staðnum

  • Rútuferðir sjá upplýsingar neðar á síðunni
  • Gisting
  • Veitingar
  • Leiðsögn um Þórsgötu
  • Varðeldur og brekkusöngur

Göngum saman í Þórsmörk

Til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini

Styrktarfélagið Göngum saman hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Frá stofnun félagsins hefur nær 165 milljónum króna verið úthlutað til íslenskra vísindamanna sem stunda slíkar rannsóknir en þær eru undirstaða þess að lækning finnist.

Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og heldur úti reglulegum göngum bæði í Reykjavík og á Akureyri félögum til heilsubótar. Hreyfing hefur einnig verið mikilvægur þáttur í fjáröflun félagsins. Til margra ára stóð félagið fyrir fjáröflunargöngum á landsvísu og undanfarin ár hafa hlauparar í Reykjavíkurmaraþoninu safnað áheitum til styrktar Göngum saman. Þá er ótalið framlag Volcano Trails sem stendur nú í fjórða sinn fyrir fjáröflunargöngu í samvinnu við Göngum saman. Megináhersla hefur ávallt verið á að öll framlög einstaklinga renni óskipt í styrktarsjóðinn.

Það er okkur sannarlega mikils virði að taka þátt í þessum viðburði með Volcano Trails í Þórsmörk, fá að njóta fallegrar náttúru undir góðri leiðsögn og safna fé í styrktarsjóðinn í leiðinni.

Nánari upplýsingar um Göngum saman á vefsíðu félagsins gongumsaman.is

Linda Björk Ólafsdóttir

Formaður Göngum saman

DAGSKRÁ GÖNGUM SAMAN ÞÓRSGÖTU

Fös 30. maí 2025

18:00 Rútuferð frá Hvolsvelli fyrir þá sem vilja taka forskot á sæluna og gista í Húsadal

Lau 31. maí 2025

  • 08:00 Rúta leggur af stað frá Laugardalsvelli - aðalstúku fótboltavallar
  • 08:10 Olís við Rauðavatn - ATH ath velja þarf Laugardalsvöll sem brottfararstað
  • 08:35 N1 Hveragerði
  • 08:50 N1 Selfossi
  • 09:30 N1 Hvolsvöllur - stutt stopp
  • 10:30 Brú Base
  • 11:00 Krossá - Bílastæði
  • 11:30 Húsadalur
  • Hádegishressing í Húsadal og léttar teygjur fyrir gönguna

12:00 Lagt af stað - GÖNGUM SAMAN ÞÓRSGÖTU

15:30 - 18:00 Fögnuður í Húsadal - Afhending áheita og almenn gleði.

  • Hægt að kaupa létta hressingu og/eða kvöldverð áður en fyrsta rúta fer tilbaka

Rútuferðir úr Þórsmörk 31. maí

  • 17:30 Fyrsta ferð frá Húsadal að bílastæði við Krossá
  • 18:00 Brottför til Reykjavíkur með stoppum á leiðinni
    • 18:10 Krossá
    • 18:45 Brú
    • 19:15 N1 Hvolsvelli - stutt stopp
    • 20:00 Olís Hella
    • 20:30 N1 Selfossi
    • 20:40 N1 Hveragerði
    • 21:20 Olís við Rauðavatn
    • 21:30 Reykjavík Laugardalsvöllur

Boðið verður upp á kvöldverð og kvöldvöku á veitingastaðnum í Húsadal fyrir þá sem ætla að gista og fara heim á sunndudag.

Sunnudagur 1. júní 2025

08:00 - 10:00 Morgunverður og létt morgunganga fyrir þá sem vilja

10:30 Rúta leggur af stað og ekur á Hvolsvöll og stoppar við Krossá og Brú á leiðinni.

Bóka rútumiða hér

Gönguleiðin um Þórsgötu

Ein fallegasta gönguleið Íslands

Þórsgatan er gönguleið sem liggur hring umhverfis alla Þórsmörk og þann 8. júní verður boðið upp á tvær útgáfur af leiðinni sem liggja báðar eftir vinsælustu áföngum Þórsgötu.

Tindfjallahringurinn er 12 km og fremur krefjandi með bröttum köflum og nokkurri hækkun en Merkurhringurinn er um 6 km fremur létt leið með aflíðandi brekkum og auðvelt að stytta leiðina frekar ef þörf krefur. Fyrir þá sem vilja jafnvel enn styttri útgáfu er lítið mál að rölta um á flatlendi og njóta útsýnisins við Húsadal eða ganga yfir í Langadal og mæta öðru göngufólki þar.

Smelltu hér til að lesa meira um gönguleiðina Þórsgötu.

Hvernig kemst ég svo í Þórsmörk

Boðið verður upp á rútuferðir alla helgina

Boðið verður upp á rútuferðir í tengslum við Göngum saman alla helgina. Þegar þú hefur lokið skráningu í viðburðinn sjálfan hér að ofan getur þú valið um tvo möguleika til að komast í Húsadal. Annarsvegar verður hægt að taka rútu frá Reykjavík, Selfossi, Hellu og Hvolsvelli og Brú. Hinsvegar verður boðið upp á ferðir yfir Krossá fyrir þá sem eru á sínum eigin jeppa og komast að ánni. Smelltu hér til að bóka rútumiða.

Hvað ef ég vil gista í Þórsmörk?

Fjölbreyttir gistimöguleikar eru í boði í Húsadal

Tilvalið er að lengja dvölina í Þórsmörk og gista í Húsadal. Hægt er að velja gistingu í lúxus glamping tjöldum, smáhýsum eða tveggja manna herbergjum. Gerðu meira úr helginni og bókaðu gistingu í Húsadal með því að smella hér.

Veitingar í Þórsmörk

Þú þarft ekkert að taka með þér!

Boðið verður upp á grillaða hamborgara eftir gönguna sem hægt er að bóka um leið og þú skráir þig til þátttöku. Veitingastaðurinn okkar í Húsadal er opinn alla helgina þar sem boðið er upp á morgunverð, hádegisverð, kvöldverðarhlaðborð, léttar veitingar yfir daginn auk þess sem hægt er að fá drykki afgreidda á barnum. Nánari upplýsingar um veitingastaðinn og matseðilinn er hægt að skoða hér.

Áheitasöfnun Göngum saman í Þórsmörk

Bjóðum öllum að styrkja gott málefni

Þú getur safnað áheitum fyrir Göngum saman. Sendu okkur tölvupóst á [email protected] með nafni hóps eða einstaklings ásamt mynd og stuttri lýsingu og við bætum ykkur á listann.

Sá sem safnar mestu fé fyrir málstaðinn fær verðlaun í formi gjafabréfs fyrir tvo í Glamping gistingu í Húsadal, Þórsmörk. Einnig er hægt að millifæra inn á reikning Göngum saman - sjá reikningsupplýsingar hér neðar á síðunni.

Dagskrá og upplýsingar
Plus icon to open answer to question
Dagskrá

DAGSKRÁ GÖNGUM SAMAN ÞÓRSGÖTU

Fös 30. maí 2025

18:00 Rútuferð frá N1 Hvolsvelli fyrir þá sem vilja taka forskot á sæluna og gista í Húsadal

Lau 31. maí 2025

08:00 Rúta leggur af stað frá Laugardalsvelli - aðalstúku fótboltavallar
08:10 Olís við Rauðavatn - ATH ath velja þarf Laugardalsvöll sem brottfararstað
08:35 N1 Hveragerði
08:50 N1 Selfossi
09:30 N1 Hvolsvöllur - stutt stopp
10:30 Brú Base
11:00 Krossá - Bílastæði
11:30 Húsadalur - Hádegishressing í Húsadal og léttar teygjur fyrir gönguna

12:00 Lagt af stað - GÖNGUM SAMAN ÞÓRSGÖTU

15:30 - 18:00 Fögnuður í Húsadal - Afhending áheita og almenn gleði.

Hægt að kaupa létta hressingu og/eða kvöldverð áður en fyrsta rúta fer tilbaka.

Rútuferðir úr Þórsmörk 31. maí

17:30 Fyrsta ferð frá Húsadal að bílastæði við Krossá
18:00 Brottför til Reykjavíkur með stoppum á leiðinni
18:10 Krossá
18:45 Brú
19:15 N1 Hvolsvelli - stutt stopp
20:00 Olís Hella
20:30 N1 Selfossi
20:40 N1 Hveragerði
21:20 Olís við Rauðavatn
21:30 Reykjavík Laugardalsvöllur

Boðið verður upp á kvöldverð og kvöldvöku á veitingastaðnum í Húsadal fyrir þá sem ætla að gista og fara heim á sunndudag.

Sunnudagur 1. júní 2025

08:00 - 10:00 Morgunverður og létt morgunganga fyrir þá sem vilja
10:30 Rúta leggur af stað og ekur á Hvolsvöll og stoppar við Krossá og Brú á leiðinni.

Bóka rútumiða hér

Plus icon to open answer to question
Hvernig tek ég þátt?
  1. Byrjaðu á því að skrá þig og greiða skráningargjald sem rennur óskipt til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Þú finnur hnappinn ofar hér á síðunni.
  2. Bókaðu gistingu ef þú vilt mæta á föstudegi eða vera fram á sunnudag
Plus icon to open answer to question
Skráning

Skráning í viðburðinn kostar kr. 6.500 en Volcano Trails bætir við kr. 1.500 með hverjum þátttakenda svo að þitt framlag verður samtals kr. 8.000. Skráningargjöld renna óskipt í Rannsóknarsjóð GÖNGUM SAMAN.

Plus icon to open answer to question
Söfnun áheita

Öllum er frjálst að styðja verkefnið. Hægt er að safna áheitum með því að fá vini, ættingja og fyrirtæki til að heita á sig fyrir að taka þátt. Í því tilfelli má senda tölvupóst á netfangið [email protected] með nafni, mynd og stuttri lýsingu. Nafn þitt eða hópsins verður þá sett upp á listann og áhugasamir geta þá heitið á þig til styrktar góðu málefni. Hægt er að greiða áheit með greiðslukortum eða með millifærslu á reikning GÖNGUM SAMAN með nafn þess sem heitið er á í skýringu. Sá sem safnar mestu fé fær verðlaun í formi gjafabréfs fyrir tvo í Glamping gistingu í Húsadal Þórsmörk.

Reikningsnúmer Göngum Saman

301-13-304524

Kt. 650907-1750

Plus icon to open answer to question
Gisting

Hægt er að bóka gistingu bæði á föstudag og laugardag fyrir þá sem vilja. Hægt er að velja milli gistingar í tveggja manna herbergjum, smáhýsum og fjallaskálum en einnig er hægt að tjalda. Hægt er að greiða fyrir tjaldstæði á staðnum og ekki þarf að bóka það fyrirfram.

Hér er hægt að bóka gistingu í Húsadal.

Plus icon to open answer to question
Erfiðleikastig gönguferða

Boðið verður upp á tvær útgáfur gönguferða á laugardeginum af mismunandi erfiðleikagráðu.

  • Húsadalur - Langidalur - Húsadalur 3 km / 1 klst
  • Merkurhringurinn með eða án Valahnúks 6 - 8 km / 3 - 5 klst
  • Tindfjallahringurinn með eða án Valahnúks 12 km / 4 - 5 klst

Auðvelt er að stytta eða lengja hverja leið fyrir sig og sníða gönguna að getu hvers og eins. Hér er hægt að skoða lýsingar á gönguleiðunum.

Plus icon to open answer to question
Veitingar

Veitingastaður Volcano Huts er opinn alla helgina og hægt að fá þar morgunverð, kvöldverð, hamborgaramáltíðir, nestispakka og drykki á barnum.

Boðið verður upp á létta máltíð eftir gönguna og hægt er að bóka hana við skráningu.

Hér er hægt að sjá nánari upplýsingar um þjónustu veitingastaðarins.

Hér stoppar rútan
>