Hér getur þú bókað rútumiða í og úr Þórsmörk, Landmannalaugar og að Skógum. Skoðaðu mögleikana og legðu land undir fót. Bókunarvélin okkar uppfærist sjálfkrafa með öllum bestu tilboðunum hverju sinni.
Húsadalur er staðsettur í Þórsmörk og til að komast hingað þarf að fara yfir óbrúaðar ár. Hér getur þú séð rútuáætlunina og keypt rútumiða í Þórsmörk.
Þessi kostur er tilvalinn fyrir þá sem ætla sér að ganga Fimmvörðuháls frá Skógum í Þórsmörk. Tilvalið er að gista í Þórsmörk eftir gönguna og taka rútuna tilbaka daginn eftir.
Hér getur þú bókað miða með daglegum rútuferðum í Landmannalaugar. Hægt er að bóka ferðir fram og til baka sama dag eða gista í Landmannalaugum og taka rútuna heim aftur þegar þér hentar.
Hér getur þú bókað rútumiða til að ganga Laugaveginn í sumar. Þú bókar rútumiða og tekur rútuna í Landmannalaugar og heim aftur frá Þórsmörk eða frá Skógum ef þú ákveður að bæta Fimmvörðuhálsinum við gönguna um Laugaveginn.